Verkefni - 02
Odyno
Betri dagur á Íslandi
Veður, færð, raunverulegir staðir
Odyno er ferðaskipulagsapp fyrir Ísland. AI agentinn Odys tengir saman raunverulega staði og bókanlegar ferðir, skynsamlegt leiðarval, veður og færð ásamt skilyrðum ferðalangsins og setur þannig saman raunhæft plan fyrir daginn.
- Hlutverk
- Höfundur
- Ár
- 2026 – í dag
- Staða
- Í þróun
Tækni
- Next.js
- React
- TypeScript
- Python
- Django
- PostgreSQL/PostGIS
- Google Maps
- OpenAI
- Valhalla
- Nominatim
- Docker
01
Upphafið
Hugmyndin kviknaði út frá spurningu sem kemur reglulega upp í hótelmóttökum: hvað er hægt að gera í dag?
Ég vann sjálfur í hótelmóttöku og kærastan mín starfar enn í hótelgeiranum. Gagnlegt svar á rigningardegi í Reykjavík felst í fleiru en að telja upp vinsæla ferðamannastaði. Aðstæður gætu verið mun betri í öðrum landshluta, en leiðin þarf að vera fær, aksturstíminn þarf að komast fyrir innan dagsins og staðirnir að vera opnir.
Mig langaði að kanna hvort AI agent gæti tengt þessar upplýsingar saman og tekið raunverulega ákvörðun um daginn, í stað þess að skila aðeins lista af tillögum.
02
Plan í stað lista
Odys er kjarninn í vörunni. Hann ræðir ferðina við ferðalanginn, safnar þeim skilyrðum sem skipta máli og metur síðan hvaða staðir henta, í hvaða röð og á hvaða tíma.
Skipulag dagsins
- 01Skilja ferðina
Festa dagsetningar, ferðamáta, upphafsstað, óskir og önnur skilyrði.
- 02Kanna aðstæður
Skoða veðurspár, viðvaranir, færð, birtutíma og opnunartíma.
- 03Setja saman daginn
Velja raunverulega staði eða ferðir, reikna leiðina og útbúa framkvæmanlegt plan.
- 04Endurskoða planið
Bregðast við í samtali ef breyta á hraða, áfangastað eða eðli dagsins.
Kortið, dagsplanið og samtalið eru mismunandi birtingarmyndir af sama skipulagi. Breyting sem gerð er í gegnum Odys uppfærir uppbyggt plan í stað þess að bæta við annarri ótengdri ferðaráðleggingu.
03
Sjálfstæði með skýrum mörkum
Ein mikilvægasta ákvörðunin í hönnun kerfisins var að skilja á milli mats og staðreyndar.
Odys ákveður hvaða landshluti hentar, hvaða staðir eiga heima í deginum og hvaða málamiðlanir eru skynsamlegar. Kerfið í kringum hann útvegar og staðfestir staðreyndirnar sem ákvörðunin byggir á. Veður og viðvaranir koma frá Veðurstofu Íslands, upplýsingar um færð frá Vegagerðinni og sjálf-hýst routing og staðaleit sjá um ferðatíma og staðsetningargögn.
Áður en breyting er vistuð fer allur dagurinn í gegnum deterministic gátlista. Lokaðir vegir, ófærar leiðir, ómöguleg tímasetning og önnur hörð skilyrði koma í veg fyrir að breytingin sé framkvæmd. Minni óvissa er áfram sýnileg svo Odys geti tekið afstöðu til hennar og útskýrt hana.
Agentinn hefur því svigrúm til að taka ákvarðanir um skipulagið, en getur hvorki búið til staðreyndirnar sem hann vinnur með né hunsað skilyrði sem kerfið framfylgir.
04
Upplifanir sem hluti af deginum
Odys getur einnig leitað að bókanlegum upplifunum og túrum þegar þær henta betur en sjálfsakstur. Ég tengdi TourDesk við kerfið til að fá aðgang að miklu úrvali ferða á Íslandi í gegnum eina tengingu, án þess að þurfa sérstakan samning við hvern rekstraraðila.
Framboð og verð eru könnuð fyrir rétta dagsetningu og fjölda ferðalanga. Upplifunin er aðeins sett inn í planið eftir að viðkomandi hefur séð og valið tiltekna upplifun. Odyno varðveitir upplýsingarnar sem voru birtar, en TourDesk heldur áfram að bera ábyrgð á lifandi framboði og bókunarferlinu.
05
Tæknin undir húddinu
Ég hannaði Odyno út frá skýrum mörkum milli mats agentsins og staðfestingar í hefðbundnum kóða.
Viðmótið er byggt með Next.js, React og TypeScript. Google Maps kort tengir samtalið við leiðina og dagsplanið.
Python- og Django-bakendi heldur utan um skipulagið, agent runtime og tengingar við önnur kerfi. PostgreSQL með PostGIS geymir landfræðileg gögn og uppbyggt ferðaplan, en sjálf-hýst Valhalla og Nominatim sjá um routing og staðaleit. Framendinn notar generated OpenAPI þjón til að tala við bakendann.
Odys vinnur í gegnum afmarkað safn tóla til að kanna aðstæður, finna staði, reikna leiðir og breyta núverandi plani. Ytri tengingar eru aðskildar frá kjarna kerfisins, þannig að hægt er að bæta við þjónustum á borð við TourDesk án þess að gera þær að hluta af sjálfu ferðaplaninu.
Kerfið
- 01Viðmót
Next.js, React, TypeScript og Google Maps
- 02Bakendi
Python, Django og PostgreSQL/PostGIS
- 03Landfræðileg gögn
Sjálf-hýst Valhalla routing og Nominatim staðaleit
- 04Skipulag
Agentic loop sem vinnur með uppbyggt ferðaplan
- 05Framboð
Aðskildar tengingar við lifandi framboð bókanlegra ferða
06
Staðan í dag
Odyno er aðgengilegt almenningi og virkar, en er enn í virkri þróun. Næstu skref eru að styrkja fjöldaga plön og undirbúa vöruna fyrir formlega útgáfu á eigin léni.
Til lengri tíma er stefnt að ferðapassa fyrir fólk sem ferðast um Ísland á bíl. Odys myndi aðstoða við að skipuleggja alla ferðina og fara reglulega yfir planið eftir því sem veðurspár og færð breytast. Ef upphaflega planið hættir að vera besti kosturinn gæti hann lagt til raunhæfar breytingar.
Slíkar breytingar yrðu aldrei gerðar sjálfkrafa án samþykkis. Odys myndi útskýra hvað hefði breyst og hvers vegna annað plan gæti nú verið betra, en ákvörðunin yrði áfram hjá ferðalanginum.